Langar þig að upplifa hamingjugæsahúð um allan kroppinn?
Langar þig að öskra með Abba lögum í eurotrans ábreiðum?
Langar þig að hjóla á staðnum, fá svita í augun og horfa skælbrosandi framan í manneskjuna við hliðina á þér?
Langar þig að öskra "ú" "ú" í falsettu og heyra allan salinn taka undir með þér?
Ef þér finnst þetta eftirsóknarvert þá skaltu koma í Hreyfingu kl. 17:20 í dag í Sal 2.
Ég er nú þegar búinn að sannfæra dr. De La Rosa um að koma en í tilefni af því fær hún sérstakan link inn á þessa bloggsíðu.
Björn Breiðholt, eiginmaður hennar mun einnig koma en það gerist hins vegar ekki fyrr enn á föstudagseftirmiðdag (nánari upplýsingar síðar) þar sem hann liggur í flensu greyið.
Víkingur Kristjánsson fjölmiðlahóra ætlar einnig að koma en ekki fyrr en í næstu viku.
Þess má til gamans geta að Örvar Þóreyjarsson Smárason hefur lýst yfir miklum áhuga og vona ég að hann komi jafnvel með mér á eftir.
Kristín Birna, Spinning kennarinn er alger meistari og mun hún sjá til þess að ég og fleiri munum eignast betra og fallegra líf.
Ég er búinn að vera í miklu SMS sambandi við hana upp á síðkastið og hlakka ég mjög mikið til að hitta hana á eftir.
Ég hef verið að ræða alvarlega við Gunnar Örn Petersen lögfræðing varðandi það að stofna félag í kringum þennan hóp.
Alla veganna, hlakka til að sjá sem flesta í dag í Spinning kl. 17:20!
En ekki hvað gott fólk!
Hvað haldið þið!
Gott stundir.
Kattahland
14 years ago

5 comments:
drengör minn!
þessi bloggsíða stefnir að því að verða ein sú besta sinnar tegundar í n-evrópu. meira svona.
spenna, gaman og fróðleikur allt í senn.
ps. viltu vera blogg-vinur minn?
Auðvitað vil ég það. Vissi ekki að þú værir með blogg.
Sjálfur blogg meistarinn í aksjón. Ég hef fylgst með þér í heitu pottunum í mörg ár.Þetta ætti ekki að koma neinum á óvart.
jesss ég fell í yfirlið af lotningu að vera með link á síðu svona meiriháttar meistara !!! I feel so important right now !!
jóní bólóní
Þú ert virkilega gott og duglegt drengur.
Kryddsvín.
Post a Comment